9.6.09

bloogggedó bló hó....

...ég hef vanrækt bloggið...það er ljóst....samt kannski harður dómur þar sem ég hef reglulega hægt sinnt því...svona inná milli....inná milli lifandi stunda sem eiga sér stað í raunheimum og núi....sem gefur að ég er blessuð með lifandi stundum og lífi hvert nú fyrir sig og inná milli...allt í flækju sem hæfir lifandi veru og lifandi skoðun.....ég er áfram blogg-hóra....fíla það....ókeypis frá minni hendi en hugsanlega gætu lesendur orðið fyrir óafturkræfum áhrifum sem skila sér kannski löngu seinna....óafturkræf áhrif eru ekki ókeypis....þannig að lesendur borga...náttúran borgar....náttúran verður reið....og rústar menningunni.....það verður nefnilega lítið um menningu þegar mannkynið er allt dautt útaf óafturkræfum áhrifum og margföldunaráhrifum og öll afleiddu störfin búin....já, hverju viltu fórna....ég fer frá sjálfi yfir í álver....því helvítis mengunin, röskunin sem á sér stað í náttúrunni verðandi umhverfi ætlar mig lifandi að áreita enn sem komið er.....