6.11.08

..mér finnst...

...gott að farí bað...heitt bað...geri það oft á dag....í ímyndun minni allavega....mér finnst ullaflíkur frábærar....ég er líka hrifin af frjálsum félagasamtökum...ég þoli ekki tilhugsunina um I.motherfukking.F-lán.....mér finnst lélegt að Árni Johnsen hafi gert grín af smámyntinni sem Færeyjar ætla að lána okkur....já.....ég vildi líka óska þess að það væru ekki til peningar, lán og vextir....útópía....?????

...er að lesa um áhrif kreppunnar í Asíu á konur.....og börn og kalla.....ég er búin að fara til Indónesíu og veit að ástandið þar er ekki gott þegar maður fer útaf sjö stjörnu hótelinu....ég tel líklegt að almenningur í Jakarta borði aðeins einu sinni á dag þessa dagana....ég mæli með myndinni The New Rulers of The World...á útúb....um Indónesíu og I.motherfukking.F.....

....ég er líka fegin að blogga ekki á moggablogginuhelvítisritskoðaða....þar er bloggurum bannað að fjalla um ýmis mál....t.d. Seitgeist Addentum....

...kannski verður mínu bloggi lokað....en ég reyni að dulkóða I.motherfukking.F....þannig að Sjé I A komi ekki og taki mig í bakaríið.....

3 ummæli:

Heiða sagði...

vá! jahá. er ein heima og væri svosem alveg til í að skreppa í bað ef ég væri ekki nýkomin úr sundi. ég vona að við þurfum ekki að borða bara einu sinni á dag. það væri stuð í 2 mánuði meðan varaforðinn í bumbunni væri að brenna...svo... ekki gaman.

Nafnlaus sagði...

Ekki vissi ég þetta með moggann! Hlakka til að hitta þig á lau :* Rósa María

GSJAK sagði...

Mér finnst gott að fara í bað, en ekki hérna á Vallarheiðinni. Baðkarið hjá okkur er gert fyrir smábörn og þegar ég ligg í því þá nær vatnið varla að fljóta yfir bumbuna mína þó baðkarið sé næstum fullt. Glatað. Ég veit meira að segja að ég er ekki alveg svona feit...heheheh