21.9.11

Að græða og græða. Þekking og þöggun náttúruverndar.

BÚuuuuuiiiiiin........

...kæri alheimur...ég er búin að rannsaka og skrifa um náttúruverndarbaráttuna....það var lærdómsríkur tími....tæp þrjú ár eru síðan ég ákvað efnistökin og tvö ár síðan ég hóf að rannsaka, taka viðtöl og gera þátttökuathuganir....eftir þetta allt saman er ég enn hissa á þessu....tilviljun réði valinu á rannsóknarefni, post-it miðar á Bogabraut Nato-byggingarinnar.....

...í dag er næstum því vika síðan ég skilaði og ég er rétt byrjuð að gera mér grein fyrir því að nú er ég komin heim úr þessu ferðalagi.....ég á eftir að fá að vita með mat og þessháttar...en það er í raun aukaatriði þegar kemur að þér kæri alheimur því ferðalagið var það sem skipti máli...ekki loka-áfangastaður....

...tjúbb tjúbb tjúbbb....ég ætla að halda áfram að vera í rauðum sokkum....kannski ekki eins stöðugt og verið hefur síðastliðna mánuði...alveg eins er með nýju kynjagleraugun mín...ég ætla að bera þau áfram....tek þau kannski stundum niður til að hvíla augun og hugann....aní hú...ást og friður...

tbj- verðandi meistari....kynjafræðingur og lífskúnstner í leit að atvinnu!!!

1.9.11

rauðir sokkar í sexmánuði.....still counting

er enn í rauðum sokkum...þeir eru sko bestir í heiminum geiminum.....elska rauðusokkana endalaust mikið.....ást í sumrinu sem óvart fór framhjá...það er nefnilega komið haust og ekki laust við að rauðu ullarsokkarnir eigi eftir að koma sér vel í komandi tíð.....ást og ást!

17.2.11

....rauðir...

...er búin að leita frekar víða, búin að labba í allar búðir í gönguleið (tuttugu mínútna radíus)....hvergi til rauðir sokkar....í gær fór ég á bíl í skeifuna...fann heilrauða nælon fótboltasokka án merkja í rúmfatabúðinni.....keypti tvö pör, enda á góðu verði....núna er markmiðið að kaupa í það minnsta tvö pör ef ég finn rauða sokka sem eru almennilegir og standast mínar kröfur....nælon sokkar er langt frá mínum venjulegu kröfum en núna verð ég að breyta gömlum vana fyrir nýja vanann...sem er rauði liturinn fyrst og fremst....næsta markmið er að finna rauða varma sokka númer 40+...þeir eru angóru og því eðal ull fyrir mínar dýrmætu og femínísku fætur....

núna er ég í nælonfótboltasokkunum...ég klippti toppinn af öðru parinu svo að ég væri ekki með of mikið af óþarfa efni (ég er ekki í hlífum innan undir)....af klippurnar nýtast síðan sem fyrirtaks handahosur....jáhá...og engin þörf á að falda af því þetta er svo mikið nælon eitur....en mér er merkilega hlýtt í þeim, þar sem þeir eru úr næloni....en liturinn hefur þessi áhrif....þessir eru rauðir með gulum í...appelsínurauðir en samt rauðir sko!!!!!!

15.2.11

í dag..rauðir sokkar með stjörnum...næstum eins og :





þessir eru mjög svipaðir sokkunum sem ég er í í dag....frekar þunnir og fínprjónaðir bómullarsokkar sem reyndust mjög "heitir" á rauðusokkagöngu dagsins....það er gott að vera í þeim...en á eftir ætla ég að skipta yfir í ullarsokkana með gráu röndinni efst....það eru ekta heima kósí sokkar....og mjög heitir....

rauðir sokkar...

eru einfaldlega betri en aðrir sokkar...rauður litur gefur hita og eflir máttuga tengingu við jörðina....vitur kona benti mér á þetta á sunnudaginn var og fann ég strax í hjarta mínu að þetta væri gamall sannleikur, áður gleymdur að koma upp á yfirborðið.....rauðir sokkar....há femínískir og sjóðandi heitir.....á sunnudagskveldið fór ég í gegnum sokkakörfuna mína og fann þar eitt par af rauðum sokkum (heilrauðir, ljósdimmrauðir ef út í það er farið) fór í þá og fann fyrir þessu....á mánudag ákvað ég að verða mér út um fleiri rauða sokka og helst ekki klæðast öðrum litum á fótum (nema undir ákveðnum tískuaðstæðum)......harpan mín gaf mér þrjú pör á mánudaginn sem við fundum í Europris.........ljósgulrauða grófbómullarsokka með grárri rönd efst....heil heitrauða fínbómullarsokka með hvítum fimmarmastjörnum......sterkrauða fjallgöngusokka með dökkgráum botni......í dag á þriðjudegi fór ég í göngutúr með það í huga að finna rauða sokka...fór í nánasta umhverfi austan við r5...nóatún, apótek, krónan, byko, olís og svo ellingsen...í ella fann ég rauða varma angóruullarsokka á 20% afslætti....keypti par en las ekki stærðina fyrr en ég hitti Hörpuna við lok rauðsokkugöngu dagsins...þá ók hún mér í Ella og þar fékk ég þær uppl. að rauðir í minni stærð (40 +) væru ekki til í augnablikinu en benti Elli mér á að fara á varma.is...fékk ég endurgreitt í seðlum....sit nú heima og plotta hvernig ég finn rauða sokka....er að hugsa um að kaupa bara íþróttaliðssokka sem eru rauðir....????eða læra að prjóna....eftir ritgerð kannski....en þar til næst...mun ég þræða borgina þar til ég hef fundið mér alla þá rauðu sokka sem ég kæri mig um að nota.....ást....

2.2.11

vetur

pottþétt vetur....snjór...slapp....vindur...vaxandi sól....aukinn raki...og svo barasta áður en við vitum af verður komið vor....

þetta er orðið árstíðakennt blogg....það er bara nokkuð svalt....er enn að skrifa ritgerðina....og held því áfram þar til ég lýk verkinu....sem verður einhverntímann í framtíðinni....algjört aukaatriði að hugsa um dagsetningar....áður en ég verð gömul....

kannski verð ég sjálfkrafa gömul þegar ég klára....klár gömul!!!

9.9.10

haust????

tilhamingju haust...þú vannst...aftur....og bráðlega taparu fyrir vetrinum...hahahaha...eða færð leikpásu því allar árstíðirnar eru í samaliðinu og skipta bara út og taka sínar vaktir hvert....hei blogg.....ritgerð er ekki tilbúin....þarf að stytta hana um 5000 orð...ogbæta við orðum...sem þýðir að ég þarf að taka kannski önnur tvö þúsund orð af....editing....er sátt við að gera það á þeim tíma sem þetta ferli krefst en ekki á hundavaði með taugaáfall í veskinu.....rokk on!

er með hjartslátt í hálsinum....

30.6.10

sumar

nú er sumar já....þetta eru nú aldeilis frumlegir titlar hér...ætli öll orkan fari ekki bara í ritgerðarskrif þessa síðustu mánuði mína sem nemi í hí for now....hmmm...skrif straumar óskast....hlakka til að blogga frjáls aftur....og aftur....bannað að gefast upp.....gangi okkur vel Heiða!

6.5.10

VOR 2010

Já það er formlega komið....var að koma af tónleikum um vorið...stóð úti eftir tónleika og var hlýtt í birtu að kvöldi til...þá er pott kom vor....dúlls....já næst á dagskrá er að vera embodiment...svona flæðandi líkami í flæðandi skrifum...sem þýðir að ég kveð elsku skrifborðið mitt í RA....já....þetta er jákvæður texti...hlaðin gildishlöðnum já-um....já...og ég er farin að endurtaka mig...eins gott að það séu ekki talandi endur hér líka....(vísun í verk um vorið sem ég heyrði áðan)...eftir konu....og konan mín að spila með...og syngja....la la la la....áfram Thelma....dudd dudd dudd duuuu..nú ætlar hún...ég að skrifa eins og mófó, kall sem þorir að gera og taka pláss...eins og kona sem ekki ritskoðar sjálfa sig...mjög mikilvægt...verð að sætta mig við tímabundið dómarahlutverk...en það fylgir því að gera rannsókn....en bless....

1.4.10

...dauði bloggsins eða bara þungur draumlaus svefn?

Er að velta þessu fyrir mér....þykir alveg vænt um þennan stað sem ég á í netheimum...staður sem geymir minningar og myndir....og komment....kannski þarf ég að vista þetta eins og fyrri blogg mín og eyða því til þess að geta byrjað upp á nýtt....refresh...og svo upprisa um hvítasunnuhelgina....ég ætlað spá í því...er annars alltaf að hugsa um sömu hlutina á mismunandi vegu....held að bráðum byrji nýr kafli hjá mér....finn það á mér...en eins og í góðri sögu þá veit ég ekkert hvað gerist í næsta kafla þó að mig gruni kannski pínu smá....kemur pottó á óvart....annars bara ást og ást...af því ekki vil ég ávarpa ástina bara með bara heldur líka án bara.....love....

26.2.10

..hei babílúla sjís mæ beibí....

...sit í stofunni...eins og svo oft áður þegar ég logga mig inn til að blogga....það er vetrartíð og ég gæti ekki verið glaðari með það...ég var nefnilega búin að hugsa svo mikið um vorið frá því 21.des að mér leið eins og það væri bara alveg að koma sumar...sem er svo sem næs tilhugsun...nema þegar kona á eftir að skrifa heila meistararitgerð og með því yfir veturinn og vorið...hahahahaha...það er vetur sem betur fer.....gekk henni að galdra....hvar er draumurinn.....úúúú....

16.2.10

...jój ó jó...

það er komið nýtt ár...í dag er nýtt tungl...6% fylling...bubl í gangi í hugsunum mínum...er orðin ansi fín viðtala-gerivera....áfram ég...og lengi lifi þetta blogg...

11.11.09

nóvemberblogg

er við hæfi vegna mánaðar og löngunar....það er nóv og mig langar að blogga....súmbí hala...það eina sem kemst að í hugsunum mínum er verkefnið sem ég sinni þessa dagana....mánuðina....að græða...ég er að skoða það....og fólk og viðhorf...lífið er viðtal og afritun....og kóðun...að kóða stöffið er aðalmálið...þegar maður er búin að ná gögnum....ætla að segja margar sögur....já hemmi minn....svona hugsa ég þessa dagana....síðustu haustlaufin eru við það að fjúka af trjánum....ég er komin með mörg púsl...þarf bara að púsla þeim saman...eða í sundur...gera listaverk úr hverju og einu þeirra.....ég þarf bara að muna eftir því að anda og njóta....held að svarið sé ást!

....ég er minn eigin herra...og ég er ekki svo auðveld við sjálfa mig....þarf aðeins að ræða við thelmustjóra og biðja hana að sýna vægð....minna síðan báðar thelmurnar á auðmýkt gagnvart sögunum sem hún er að púsla með....enn sem komið er er dagplanið te og jóga...í engri sérstakri röð...helst að mixa ferlin....lesa....fara í tíma....kóða....kóða kóða kóða....taka viðtöl inná milli og smyrja síðan allt með ást!

21.10.09

...á netinu...

...núna er ég....með gogoyoko.com sem hliðardálk...þaðan kemur tónlistin mín...eða tónlist annarra af mínum spillista....kúl orð....svo er ég á feisbúkk að spjalla við gamlan góðan vin....samstarfsfélaginn af Kópavogshæli....good times...djúp reynsla...ekki beint góð en samt frábær....svo er ég hér að blogga...af því allt í einu fattaði ég að það er gott....gott vont vont frábært....einsog netið....

nýjustu fréttir af hælinu...allir farnir nema tvö...kannski...kannski eru allir farnir eitthvað annað...eða leika sér ennþá í alterveruleika út á rútstúni...eða oní fjöru að kela....ég vona það....friðursémeðykkur

1.10.09

...tileinkað heiðu....

...hér er smá af mér fyrir þig sérstaklega....hvatning í bloggi meðtekin og ég komin af stað í þessum skrifuðu orðum....orð eru nefnilega mikilvæg og ég veit þú elskar orð....orðamorð er líka skemmtilegt....eða orð með morðinu oná borðinu.....haustlaufin fjúka enn inn á stofugólfið og fá að þorna upp endanlega...þar til gulluryksugan (bosch keypt með gullu í kef-byko) kemur og sígur þau upp í rykuga líkkistu sem pokinn er.....haustið er löngukomið og veturinn bíður við dyrnar spenntur að komast inn eftir allt fjörið.....ég er laus við samviskubitið....næsta mál á dagskrá er að hætta að reyna bjarga öllum heiminum og bjarga honum þannig.....það er hamar og berg í bjargi...fluglæsileg inniheldur líka glæsileg....hei vei jei sei no more....

27.9.09

...leyndarmál...ekki lengur....

Hunang og kanill.
Staðreyndir um Hunang (Pure Honnig) og Kanil: Það er staðreynd að sambland af hunangi og kanil læknar flesta sjúkdóma. Hunang er framleitt í flestum löndum heims. Vísindamenn samþykkja hunang eins og áhrifamikið meðal gegn alls konar sjúkdómum. Hunang má nota án nokkurra hliðarverkana gegn hverskonar sjúkdómum. Vísindamenn segja að þó svo hunang sé sætt þá hafi það ekki áhrif á sykursjúka, ef það er tekið í réttum skömmtum. Eftirfarandi hefur verið gefið út í Kanada eftir að vísindamenn hafa rannsakað áhrif af inntökum hunangs og Kanils.

Hjartasjúkdómar.
Hrærið saman hunangi og kanil og notið á brauð í saðinn fyrir Jelly eða sultu og borðið reglulega í morgunverð. Það dregur úr kolesterol í slagæðum og dregur úr hættu á að sjúklingar fái hjartaáfall. Þeir sem þegar hafa fengið hjartaáfall geta með þessari aðferð dregið mjög mikið úr því að fá áfall aftur. Regluleg notkun á ofantöldu dregur úr hættu á að missa andann og styrkir hjartað. Í Ameríku og Kanada hafa mörg sjúkraskýli læknað sjúklinga með góðum árangri og staðreynd er að eftir því sem aldurinn færist yfir þá tapa æðar sveigjanleika sínum og eiga á hættu að stíflast; Hunang og kanill endurlífga slagæðar og blóðæðar.


Liðagigt.
Liðagigtarsjúklingar ættu að taka inn að morgni og kvöldi, einn bolla af heitu vatni með tvær matskeiðar af hunangi og eina litla teskeið af kanil. Ef þetta er tekið inn reglulega getur jafnvel krónisk liðagigt læknast. Nýlegar rannsóknir við Kaupmannahafnarháskóla sýna, að þegar læknar létu sjúklinga taka inn eina matskeið af hunangi og hálfa teskeið af kanil fyrir morgunverð, fundu þeir út, að á einni vikur höfðu 73 sjúklingar af 200 verið læknaðir af verkjum, og á einum mánuði höfðu næstum allir sjúklingar sem gátu ekki gengið vegna liðagigtar, náð að ganga án verkja.


Blöðrusjúkdómar.
Hrærið tvær matskeiðar af kanil og eina teskeið af hunangi? í glas af volgu vatni og drekkið þetta. Það eyðir sýklum í þvagblöðrunni.

Kólesteról.

Tvær matskeiðar af hunangi og þrjár teskeiðar af kanil hrært út í hálfum líter af tevatni sem kólesterol sjúklingur drakk, lækkaði kólesteról í blóðinu um 10 % á tveimur klukkustundum.
Liðagigtarsjúklingur sem drekkur svona þrisvar á dag læknast alveg af króniskum kólesteról sjúkdómi. Samkvæmt upplýsingum úr skýrslum, dregur dagleg inntaka af hunangi (Pure Honnig) með mat úr kólesteról sjúkdómum.
Kvef.
Sjúklingar með kvef ættu að taka inn eina matskeið af volgu hunangi og einn-fjórða matskeið af kanil, daglega í þrjá daga. Þessi inntaka mun lækna króniskan hósta, kvef og kuldahroll.
Magaverkir.
Hunang og kanill tekið inn daglega læknar maga-verki og græðir magasár frá rótum sársins.
Loft.
Rannsóknir sem hafa verið gerðar í Indlandi og Japan, hafa leitt í ljós að inntaka af hunangi og kanil dregur úr vindgangi.



Ónæmiskerfið.
Dagleg inntaka af hunangi og kanil styrkir ónæmiskerfið og ver líkamann fyrir bakteríum . Vísindamenn hafa sannað að í hunangi eru mörg vítamín og járn í miklu magni. Notkun að staðaldri styrkir hvítu blóðkornin til þess að vinna á móti bakteríum.

Meltingartruflanir.
Kanil sáldrað ofan á tvær matskeiðar af hunangi og borðað á undan máltíð dregur úr sýrumyndun og hjálpar meltingu.
Influensa.
Vísindamenn á Spáni hafa sannað að hunang inniheldur náttúruleg efni sem vinnur á flensu-veirum og ver fólk við flensusjúkdómum.

Langlífi.
Te með hunangi og kanil sem er drukkið reglulega seinkar öldrun. Setjið fjórar matskeiðar af hunangi og eina matskeið af kanil í þrjá bolla af vatni og sjóðið eins og væri te. Drekkið ¼ bolla þrisvar til fjórum sinnum á dag. Það hefur góð áhrif á húðina og dregur úr öldrun, jafnvel svo að einstaklingur lítur út fyrir að vera yngri en hann er.

Bólur.
Þrjár matskeiðar af hunangi og ein teskeið af kanil hrært saman. Berið þetta á bólurnar fyrir svefn og þvoið af næsta morgun með volgu vatni. Ef þetta er gert daglega í tvær vikur munu bólur hverfa frá rótum.

Húðsýking.
Ef þú hrærir jafn mikið af hunangi og kanil saman og smyrð á sýkta bletti þál æknast útbrot, sveppasýking og allskonar húðsjúk-dómar.
Yfirþyngd.
Drekkið hunang og kanil sem er soðið í einum bolla af vatni, daglega hálftíma fyrir morgunverð á fastandi maga, og á kvöldin. Ef þetta er drukkið reglulega, þá léttir það jafnvel feitasta fólk. Þetta kemur einnig í veg fyrir að fita geti safnast á líkamann jafnvel þó viðkomandi borði mikið kaloríuinnihald.
Krabbamein.
Nýlegar niðurstöður í Japan og Ástralíu hafa leitt í ljós að maga- og beinkrabbamein á háu stigi hefur verið læknað með góðum árangri. Sjúklingar sem þjást af slíku krabbameini ættu að taka inn eina matskeið af hunangi og eina teskeið af kanil þrisvar á dag í einn mánuð.
Þreyta.
Nýlegar niðurstöður haf sýnt að sykurmagn í hunangi er uppbyggilegra heldur en skaðlegt styrk líkamans. Aldraðir, sem taka inn hunang og kanil í jöfnum skömmtum eru miklu meira vakandi. Dr. Milton, sem hefur gert svona rannsóknir, segir að hálf matskeið af hunangi og teskeið af kanil hrært út í glas af vatni, drukkið að morgni og aftur síðdegis þegar þrek líkamans byrjar að minnka, mun auka þrekið til muna á einni viku.
Heyrnartap.
Hunang og kanill í jafnstórum skömmtum tekið inn að morgni og kvöldi skerpir heyrnina. Munið þegar við vorum börn? Þá fengum við ristað með ekta smjöri og kanil ofan á.