1.5.12

V21

...kæri alheimur ég á þetta hús...50% hlutur á móti 50% hlut H.J.....gotta love team hot....ég hlakka til að flytja þangað og drekka mikið af kafffi og vatni og viskí.....

9.2.12

...englavaktin...

..helduráfram...það væri hægt að gera sjónvarpsefni spennandi um englavaktina....hvernig hún virkar....aðdraganda englasveims....og fleira....í dag er fullt tungl...annar í fullu....to be exact....flæðið er velkomið og þær ákvarðanir sem teknar eru eru byggðar á stoðum sannleikans...með traust í hjarta og rólyndisfíling um fullvissuna að allt sé að eiga sér stað nákvæmlega einsog það á að gerast....ég elska mig og samþykki!!! Þar með elska ég englana og samþykki þá!!!!

18.11.11

englavaktin...

virkar alltaf....jáhá...nokkrum stundum síðar var hún komin með vinnu....sjá ég er með ykkur alla virka daga milli 8.30 og 15.30....stundum lengur ef undirbúnings er þörf....takk fyrir mig kæri alheimur....p.s. tilhamingjumeðafmælið tótaben

14.11.11

vetrartíðin...

er yfirvofandi...það er mjúkur tími sem fer í hönd og hjarta...með framtíð bjarta og vinnu.....vonandi....vel megandi....oft og tíðum var það sagt að á mánudagsmorgnum komi englar vikunnar á vakt...sé kveikt á kerti koma þeir, biðji kona koma þeir....there is a place in this blog for north, east, south, west, grandmother earth and grandfather sky....

22.10.11

í dag...

verð ég kynjafræðingur...kviss bamm búmm....tilbúin....takk fyrir ferðalagið elsku thelman mín....og þið sem fylgdust með eða að....ást og knús....

21.9.11

Að græða og græða. Þekking og þöggun náttúruverndar.

BÚuuuuuiiiiiin........

...kæri alheimur...ég er búin að rannsaka og skrifa um náttúruverndarbaráttuna....það var lærdómsríkur tími....tæp þrjú ár eru síðan ég ákvað efnistökin og tvö ár síðan ég hóf að rannsaka, taka viðtöl og gera þátttökuathuganir....eftir þetta allt saman er ég enn hissa á þessu....tilviljun réði valinu á rannsóknarefni, post-it miðar á Bogabraut Nato-byggingarinnar.....

...í dag er næstum því vika síðan ég skilaði og ég er rétt byrjuð að gera mér grein fyrir því að nú er ég komin heim úr þessu ferðalagi.....ég á eftir að fá að vita með mat og þessháttar...en það er í raun aukaatriði þegar kemur að þér kæri alheimur því ferðalagið var það sem skipti máli...ekki loka-áfangastaður....

...tjúbb tjúbb tjúbbb....ég ætla að halda áfram að vera í rauðum sokkum....kannski ekki eins stöðugt og verið hefur síðastliðna mánuði...alveg eins er með nýju kynjagleraugun mín...ég ætla að bera þau áfram....tek þau kannski stundum niður til að hvíla augun og hugann....aní hú...ást og friður...

tbj- verðandi meistari....kynjafræðingur og lífskúnstner í leit að atvinnu!!!

1.9.11

rauðir sokkar í sexmánuði.....still counting

er enn í rauðum sokkum...þeir eru sko bestir í heiminum geiminum.....elska rauðusokkana endalaust mikið.....ást í sumrinu sem óvart fór framhjá...það er nefnilega komið haust og ekki laust við að rauðu ullarsokkarnir eigi eftir að koma sér vel í komandi tíð.....ást og ást!

17.2.11

....rauðir...

...er búin að leita frekar víða, búin að labba í allar búðir í gönguleið (tuttugu mínútna radíus)....hvergi til rauðir sokkar....í gær fór ég á bíl í skeifuna...fann heilrauða nælon fótboltasokka án merkja í rúmfatabúðinni.....keypti tvö pör, enda á góðu verði....núna er markmiðið að kaupa í það minnsta tvö pör ef ég finn rauða sokka sem eru almennilegir og standast mínar kröfur....nælon sokkar er langt frá mínum venjulegu kröfum en núna verð ég að breyta gömlum vana fyrir nýja vanann...sem er rauði liturinn fyrst og fremst....næsta markmið er að finna rauða varma sokka númer 40+...þeir eru angóru og því eðal ull fyrir mínar dýrmætu og femínísku fætur....

núna er ég í nælonfótboltasokkunum...ég klippti toppinn af öðru parinu svo að ég væri ekki með of mikið af óþarfa efni (ég er ekki í hlífum innan undir)....af klippurnar nýtast síðan sem fyrirtaks handahosur....jáhá...og engin þörf á að falda af því þetta er svo mikið nælon eitur....en mér er merkilega hlýtt í þeim, þar sem þeir eru úr næloni....en liturinn hefur þessi áhrif....þessir eru rauðir með gulum í...appelsínurauðir en samt rauðir sko!!!!!!

15.2.11

í dag..rauðir sokkar með stjörnum...næstum eins og :





þessir eru mjög svipaðir sokkunum sem ég er í í dag....frekar þunnir og fínprjónaðir bómullarsokkar sem reyndust mjög "heitir" á rauðusokkagöngu dagsins....það er gott að vera í þeim...en á eftir ætla ég að skipta yfir í ullarsokkana með gráu röndinni efst....það eru ekta heima kósí sokkar....og mjög heitir....

rauðir sokkar...

eru einfaldlega betri en aðrir sokkar...rauður litur gefur hita og eflir máttuga tengingu við jörðina....vitur kona benti mér á þetta á sunnudaginn var og fann ég strax í hjarta mínu að þetta væri gamall sannleikur, áður gleymdur að koma upp á yfirborðið.....rauðir sokkar....há femínískir og sjóðandi heitir.....á sunnudagskveldið fór ég í gegnum sokkakörfuna mína og fann þar eitt par af rauðum sokkum (heilrauðir, ljósdimmrauðir ef út í það er farið) fór í þá og fann fyrir þessu....á mánudag ákvað ég að verða mér út um fleiri rauða sokka og helst ekki klæðast öðrum litum á fótum (nema undir ákveðnum tískuaðstæðum)......harpan mín gaf mér þrjú pör á mánudaginn sem við fundum í Europris.........ljósgulrauða grófbómullarsokka með grárri rönd efst....heil heitrauða fínbómullarsokka með hvítum fimmarmastjörnum......sterkrauða fjallgöngusokka með dökkgráum botni......í dag á þriðjudegi fór ég í göngutúr með það í huga að finna rauða sokka...fór í nánasta umhverfi austan við r5...nóatún, apótek, krónan, byko, olís og svo ellingsen...í ella fann ég rauða varma angóruullarsokka á 20% afslætti....keypti par en las ekki stærðina fyrr en ég hitti Hörpuna við lok rauðsokkugöngu dagsins...þá ók hún mér í Ella og þar fékk ég þær uppl. að rauðir í minni stærð (40 +) væru ekki til í augnablikinu en benti Elli mér á að fara á varma.is...fékk ég endurgreitt í seðlum....sit nú heima og plotta hvernig ég finn rauða sokka....er að hugsa um að kaupa bara íþróttaliðssokka sem eru rauðir....????eða læra að prjóna....eftir ritgerð kannski....en þar til næst...mun ég þræða borgina þar til ég hef fundið mér alla þá rauðu sokka sem ég kæri mig um að nota.....ást....

2.2.11

vetur

pottþétt vetur....snjór...slapp....vindur...vaxandi sól....aukinn raki...og svo barasta áður en við vitum af verður komið vor....

þetta er orðið árstíðakennt blogg....það er bara nokkuð svalt....er enn að skrifa ritgerðina....og held því áfram þar til ég lýk verkinu....sem verður einhverntímann í framtíðinni....algjört aukaatriði að hugsa um dagsetningar....áður en ég verð gömul....

kannski verð ég sjálfkrafa gömul þegar ég klára....klár gömul!!!

9.9.10

haust????

tilhamingju haust...þú vannst...aftur....og bráðlega taparu fyrir vetrinum...hahahaha...eða færð leikpásu því allar árstíðirnar eru í samaliðinu og skipta bara út og taka sínar vaktir hvert....hei blogg.....ritgerð er ekki tilbúin....þarf að stytta hana um 5000 orð...ogbæta við orðum...sem þýðir að ég þarf að taka kannski önnur tvö þúsund orð af....editing....er sátt við að gera það á þeim tíma sem þetta ferli krefst en ekki á hundavaði með taugaáfall í veskinu.....rokk on!

er með hjartslátt í hálsinum....

30.6.10

sumar

nú er sumar já....þetta eru nú aldeilis frumlegir titlar hér...ætli öll orkan fari ekki bara í ritgerðarskrif þessa síðustu mánuði mína sem nemi í hí for now....hmmm...skrif straumar óskast....hlakka til að blogga frjáls aftur....og aftur....bannað að gefast upp.....gangi okkur vel Heiða!

6.5.10

VOR 2010

Já það er formlega komið....var að koma af tónleikum um vorið...stóð úti eftir tónleika og var hlýtt í birtu að kvöldi til...þá er pott kom vor....dúlls....já næst á dagskrá er að vera embodiment...svona flæðandi líkami í flæðandi skrifum...sem þýðir að ég kveð elsku skrifborðið mitt í RA....já....þetta er jákvæður texti...hlaðin gildishlöðnum já-um....já...og ég er farin að endurtaka mig...eins gott að það séu ekki talandi endur hér líka....(vísun í verk um vorið sem ég heyrði áðan)...eftir konu....og konan mín að spila með...og syngja....la la la la....áfram Thelma....dudd dudd dudd duuuu..nú ætlar hún...ég að skrifa eins og mófó, kall sem þorir að gera og taka pláss...eins og kona sem ekki ritskoðar sjálfa sig...mjög mikilvægt...verð að sætta mig við tímabundið dómarahlutverk...en það fylgir því að gera rannsókn....en bless....

1.4.10

...dauði bloggsins eða bara þungur draumlaus svefn?

Er að velta þessu fyrir mér....þykir alveg vænt um þennan stað sem ég á í netheimum...staður sem geymir minningar og myndir....og komment....kannski þarf ég að vista þetta eins og fyrri blogg mín og eyða því til þess að geta byrjað upp á nýtt....refresh...og svo upprisa um hvítasunnuhelgina....ég ætlað spá í því...er annars alltaf að hugsa um sömu hlutina á mismunandi vegu....held að bráðum byrji nýr kafli hjá mér....finn það á mér...en eins og í góðri sögu þá veit ég ekkert hvað gerist í næsta kafla þó að mig gruni kannski pínu smá....kemur pottó á óvart....annars bara ást og ást...af því ekki vil ég ávarpa ástina bara með bara heldur líka án bara.....love....